Fjölbrautaskóli Suðurnesja stofnun ársins
Val á Stofnun ársins 2024 var tilkynnt á hátíð Sameykis þann 13. febrúar en titlana Stofnun ársins og Stofnun ársins - borg og bær hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í könnun Sameykis meðal starfsmanna þeirra. Könnunin náði til starfsmanna í opinberri þjónustu hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja varð í 1. sæti í flokki stórra ríkisstofnana í könnuninni og er þetta þriðja árið í röð sem skólinn er í efsta sæti í þessum flokki. Stærðarflokkarnir eru stofnanir með færri en 40 starfsmenn, stofnanir með 40-89 starfsmenn og stofnanir með 90 eða fleiri starfsmenn. Fimm efstu stofnanir í hverjum flokki hljóta titilinn Fyrirmyndarstofnun og fær skólinn þann titil nú í 9. sinn á síðustu ellefu árum.
Það voru Kristján Ásmundsson skólameistari og Guðmundur Grétar Karlsson aðstoðarskólameistari sem tóku við viðurkenningunni fyrir okkar hönd.