Stóru Vogaskóli
Stóru Vogaskóli

Fréttir

Sannkölluð vertíðarstemning í Grindavík ef allt gengur eftir
Jóhanna Gísladóttir GK kemur til Grindavíkur á dögunum. Mynd: Jón Steinar Sæmundsson
Laugardagur 12. apríl 2025 kl. 06:20

Sannkölluð vertíðarstemning í Grindavík ef allt gengur eftir

Mikil aukning í lönduðum afla í Grindavík

Áttföld aukning varð af lönduðum bolfiski í Grindavík fyrstu þrjá mánuði ársins samanborið við landaðan afla 2024. Landaður bolfiskur var í fyrra 12,5%  í Grindavíkurhöfn miðað við 2023 en er nú kominn í tæplega 60%. Þessi aukning hefur orðið þrátt fyrir afleit veðurskilyrði í febrúar og viðvarandi hættustig Almannavarna þar sem höfnin missti margar landanir skipa í aðrar hafnir. Þetta kemur fram í samantekt á vef Grindavíkurbæjar.

Það má því segja með vissu að botninum hafi verið náð í fyrra þar sem umsvif í Grindavíkurhöfn hefur tekið umtalsverðan kipp frá því sem þá var.

Um helgina lönduðu fjórir togarar þeir Bergur VE 44, Vestmannaey VE 54, Áskell ÞH 48  og Vörður ÞH 44 samtals 335 tonnum og á mánudagsmorgun var Páll Jónsson GK 7 að landa um 100 tonnum.

VF Krossmói
VF Krossmói

Í vikunni er gert ráð að hið nýja glæsilega skip Ganta ehf., Hulda Björnsdóttir GK 11 komi inn til löndunar. Einnig eru Sighvatur GK 57 ásamt togurunum fjórum sem lönduðu nú um helgina og Jóhanna Gísla væntanleg til löndunar. Von er á að línubátar og handfærabátar komi von bráðar til hafnarinnar með öllum þeim umsvifum sem þeim fylgir.

Það er því að verða sannkölluð vertíðarstemning í Grindavík ef allt gengur eftir, segir á vef Grindavíkurbæjar.