Yfirlýsing frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg vegna atburðar við Grindavík í morgun
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atburðar við Grindavík í morgun. Yfirlýsingin er svohljóðandi:
Þegar kvikuhlaup hófst við Grindavík snemma í morgun og í kjölfarið eldgos, voru björgunarsveitir á Suðurnesjum ræstar út í samræmi við áætlanir, björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík á meðal þeirra. Verkefni Þorbjarnar var fyrst og fremst að aðstoða þá Grindvíkinga sem enn búa í bænum við að rýma bæinn. Þessu verkefni sinntu 15 félagar sveitarinnar. Hlutverk björgunarsveita við rýmingu er fyrst og fremst að tryggja að allir einstaklingar á svæðinu séu meðvitaðir um stöðuna sem upp er komin þ.e. séu t.d. ekki sofandi heima og aðstoða þá sem af einhverjum ástæðum komast ekki af sjálfsdáðum úr bænum svo dæmi séu tekin. Það er ekki hlutverk björgunarsveitarfólks að vísa fólki úr bænum en það bendir fólki góðfúslega á það að skynsamlegt sé að yfirgefa bæinn meðan óvissuástand varir.
Í morgun var hópur frá björgunarsveitinni Þorbirni sendur til þess að aðstoða einstakling í bænum við að ganga frá nokkrum lausum endum. Þegar þeirri aðstoð var lokið var viðkomandi bent á að skynsamlegt væri að yfirgefa bæinn. Á þeim tímapunkti situr einstaklingurinn í bíl sínum og björgunarsveitarmaður stendur við gluggann hjá honum þegar viðkomandi dregur upp byssu og beinir henni upp í loftið yfir höfuð björgunarsveitarmanns. Björgunarsveitarfólkinu er að vonum illa brugðið, hverfur á braut og tilkynnir atvikið til aðgerðarstjórnar.
Félagar Slysavarnafélagsins Landsbjargar sýna því mikinn skilning að ekki vilji allir yfirgefa bæinn þegar þessar aðstæður skapast og það er alveg skýrt að það er ekki hlutverk sjálfboðaliða í björgunarsveit að setjast í dómarasæti og hlutast til um það hverjir eigi að fara og hverjir megi vera.
Það sem er hins vegar alveg skýrt, að það er algjörlega óásættanlegt að björgunarsveitarfólki sé mætt með því að draga upp skotvopn. Við slíkt getum við ekki og eigum ekki að sætta okkur við.
Öllum félögum í Slysavarnafélaginu Landsbjörg er verulega brugðið yfir þessum atburði, sem varpar enn frekari skugga á ömurlegt ástand Grindvíkinga um þessar mundir.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur alla til að koma vel fram við björgunarsveitarfólk sem og aðra viðbragðsaðila og muna að það eru allir að gera sitt besta við erfiðar aðstæður.
Undir yfirlýsinguna skrifar Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar