Heklan
Heklan

Íþróttir

Ekki dagur Suðurnesjaliðanna í Bónusdeild karla
Kannski táknræn mynd fyrir gærkvöldið.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 31. janúar 2025 kl. 08:57

Ekki dagur Suðurnesjaliðanna í Bónusdeild karla

Grindavík og Njarðvík léku í Bónusdeild karla í gærkvöldi og þurftu bæði að sætta sig við tap, Grindavík á heimavelli gegn Stjörnunni og Njarðvík á útivelli á móti Valsmönnum.

Grindvíkingar mættu til leiks með mikið breytt lið, nýr Bandaríkjamaður ekki kominn en Grindvíkingarnir Bragi Guðmundsson og Arnór Tristan Helgason báðir í búningi. Það breytti samt litlu sem engu, allan neista vantaði í lið Grindvíkinga og Stjarnan var miklu betri allan tímann og vann að lokum öruggan sigur, 87-108. Sem fyrr var Deandre Kane bestur Grindvíkinga, endaði með 24 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar og Lagio Grantsaan sem er nýlega genginn til liðs við liðið, var með 21 stig og 7 fráköst. Íslensku lykilmennirnir víðs fjarri og ljóst að þeir þurfa að girða sig í brók ef Grindavík ætlar alla leið í ár. Í viðtali eftir leikinn sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga, að deyfð sé búin að vera yfir mannskapnum síðan í nóvember og nú sé kominn tími til að girða sig í brók. Nýi Kaninn, Jeremy Pargo, átti að lenda í morgun en þar fer leikstjórnandi sem vonandi mun taka yfir stjórn liðsins. Ef hann smellur inn í hópinn, gætu Grindvíkingar verið fljótir að snúa taflinu við, ekki veitir af í geysilega jafnri Bónusdeildinni.

Njarðvíkingar virtust ætla sigla öruggum sigri í höfn á móti Valsmönnum, leiddu í hálfleik með sjö stigum og voru með þægilegt forskot þar til Valsmönnum tókst að skella í lás í vörn sinni og vinna lokaleikhlutann, 26-11 og leikinn þar með 88-76. Njarðvíkingar þurfa að fara í naflaskoðun í kjölfar þessa hruns í fjórða leikhluta en fram að því voru þeir að spila mjög vel og virtust vera með Valsmenn þar sem þeir vildu hafa þá. Allt byrjunarliðið skilaði 10+, Dominykas Milka hæstur með 19 stig og 9 fráköst. Khalil Shabazz var með 16 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar. Hjá Valsmönnum var það Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson sem var sínum gömlu félögum erfiður ljár í þúfu, endaði með 20 stig, þar af fimm þrista.

Keflvíkingar leika í kvöld á útivelli á móti KR.