Íþróttir

  • England er hjarta fótboltans
    Aðspurður um fyrirmynd í fótboltanum þá nefnir Stefan Svíann Zlatan Ibrahimovic. Hann er einmitt stór framherji sem býr yfir mikilli tækni, þannig að Stefan er frekar líkur Svíanum sterka á velli.
  • England er hjarta fótboltans
Föstudagur 3. júní 2016 kl. 20:00

England er hjarta fótboltans

Hinn 16 ára Stefan Ljubicic úr Keflavík samdi við 1. deildarlið Brighton

Stefan Alexander Ljubicic mun á næstunni yfirgefa æskuslóðirnar í Keflavík og halda til Brighton á Englandi. Þar hefur hann samið við lið Brighton Hove Albion sem leikur í næst efstu deild Englands. Stefan er aðeins 16 ára en hann hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og æft með meistaraflokki Keflavíkur undanfarin tvö ár. Hann lék þrjá leiki í Pepsi-deildinni í fyrra og hefur verið í hópnum í byrjun tímabils í 1. deildinni.

Eftir frábæra frammistöðu með 17 ára liði Íslands þar sem Stefan á að baki átta leiki, þá fór hann að vekja athygli liða á Bretlandseyjum. Fyrir utan Brighton fór Stefan á reynslu til skoska stórliðsins Celtic og enska liðsins Norwich. „Mér leist best á Brighton. Þeir eru með nýja akademíu og hugsa vel um mann innan vallar sem utan. Mér leið vel þar,“ segir Stefan sem heldur utan eftir mánuð. „Þetta verður bara ævintýri, vona ég. Það verður erfitt en ég elska fótbolta mest í heiminum og stefni á að ná langt,“ segir framherjinn ungi sem verður 17 ára í október. „England finnst mér vera hjarta fótboltans. Það vilja allir leikmenn koma til Englands,“ bætir hann við.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Stefan fór á reynslu hjá Brighton þar sem leikið var gegn sterku unglingaliði Chelsea þar sem Keflvíkingurinn skoraði mark og lék afar vel. Strax eftir þann leik var honum boðið að koma til liðsins. Brighton er spennandi borg að sögn Stefans, en hún er á Suður Englandi í um 20 til 30 mínútna fjarlægð frá London. Áður en ákvörðun var tekin þá ráðfærði Stefan sig við nokkra aðila. Hann ræddi meðal annars við Keflvíkinginn Samúel Kára Friðjónsson sem leikið hefur með Reading á Englandi frá unglingsaldri. „Hann sagði mér að þetta geti verið erfitt þar sem maður er fjarri vinum og fjölskyldu. Þetta getur líka verið magnað. Maður verður leiður á einhverjum tímapunkti. Maður þarf bara að vera sterkur og njóta.“ Lið Brighton var nálægt því að komast upp í úrvalsdeild nú í vor en það féll úr keppni í útsláttarkeppni á síðustu stundu.

Var efnilegur í körfubolta

Stefan var góður í körfuboltanum á sínum tíma en hætti fyrir rúmlega tveimur árum. Hann ætlaði sér þó alltaf að velja fótboltann sem hann segir hafa verið rétta ákvörðun. Hann er  hávaxinn svona miðað við fótboltamann, enda 193 cm á hæð. Hann gnæfir orðið yfir fjölskylduna sína. „Þetta er frekar furðulegt. Ég veit ekki hvaðan þetta kemur, það er enginn stór í fjölskyldunni.“ Stefan á ekki langt að sækja fótboltahæfileikana en hann er sonur Zoran Ljubicic sem gerði það gott sem leikmaður og síðar þjálfari hjá Keflavík. Nú er Stefan framherji en hann getur einnig leikið í holunni svokölluðu fyrir aftan framherjana. Áður fyrr lék hann á miðjunni í varnarsinnuðu hlutverki. „Pabbi færði mig framar og kenndi mér stöðuna. Það gekk vel og ég fór að skora mörk. Ég á honum margt að þakka. Hann og Haukur þjálfari hafa kennt mér mikið og þakka ég þeim óendanlega fyrir.“ Stefan er sjálfur metnaðarfullur og hefur lagt hart að sér til þess að verða góður leikmaður. „Ég æfi eitthvað á hverjum degi. Ef það er ekki æfing þá fer ég bara út í fótbolta eða fer niður á völl og fer að skjóta. Það er leyndarmálið, aukaæfingar.“

Bojan eldri bróðir Stefans er leikmaður í meistaraflokki Keflavíkur eins og Stefan. Það kemst því lítið annað að en fótbolti á heimilinu. „Fótbolti er það eina sem er í sjónvarpinu og við erum alltaf að tala um fótbolta heima,“ segir Stefan að lokum.