Góður útisigur Njarðvíkinga – Grindavík tapaði fyrir toppliðinu
Njarðvíkingar héldu til Þorlákshafnar í gær og unnu góðan sigur á Hamar/Þór í Bónusdeild kvenna í körfuknattleik. Á sama tíma tapaði Grindavík fyrir toppliði Hauka á Ásvöllum.
Njarðvíkurkonur byrjuðu leikinn betur og höfðu fjögurra stiga forskot eftir fyrsta leikhluta (21:25) sem þær juku í tíu stig áður en blásið var til hálfleiks (46:56).
Heimakonur komu sterkar inn í seinni hálfleik og minnkuðu muninn í fjögur stig fyrir fjórða leikhluta (74:78). Njarðvíkingar lönduðu að lokum öruggum sigri með góðri frammistöðu í fjórða leikhluta (93:106).
Grindavík fór illa af stað í leiknum á móti Haukum og toppliðið leiddi með þrettán stigum eftir fyrsta leikhluta (26:13). Dæmið snerist við í öðrum leikhluta og Grindvíkingar komust langt með að jafna leikinn fyrir hálfleik (39:36). Forystu Hauka náðu Grindvíkingar aldrei að vinna upp og voru að elta allan leikinn sem lauk með sigri heimaliðsins (88:80).
Bæði lið skörtuðu nýjum leikmönnum í gær. Pauline Hersler var með tuttugu stig fyrir Njarðvík í sínum fyrsta leik en fyrrum leikmaður Njarðvíkinga, Ena Viso, var með tíu stig í sínum fyrsta leik fyrir Grindavík.
Hamar/Þór - Njarðvík 93:106
(21:25, 25:31, 28:22, 19:28)
Njarðvík: Brittany Dinkins 28/4 fráköst/9 stoðsendingar, Paulina Hersler 20/5 fráköst, Emilie Sofie Hesseldal 17/14 fráköst/5 stolnir, Hulda María Agnarsdóttir 16/5 stoðsendingar, Krista Gló Magnúsdóttir 10, Sara Björk Logadóttir 6, Kristín Björk Guðjónsdóttir 6, Lára Ösp Ásgeirsdóttir 3, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0, Veiga Dís Halldórsdóttir 0, Katrín Ósk Jóhannsdóttir 0, Ásta María Arnardóttir 0.
Haukar - Grindavík 88:80
(26:13, 13:23, 26:21, 23:23)
Grindavík: Daisha Bradford 22/12 fráköst/7 stoðsendingar, Isabella Ósk Sigurðardóttir 20/9 fráköst/3 varin skot, Ena Viso 10/6 fráköst, Hulda Björk Ólafsdóttir 9/4 fráköst, Sofie Tryggedsson Preetzmann 8/6 fráköst, Mariana Duran 5/9 stoðsendingar, Ólöf Rún Óladóttir 3, Sóllilja Bjarnadóttir 3, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, Sædís Gunnarsdóttir 0, Hjörtfrídur Óðinsdóttir 0, Þórey Tea Þorleifsdóttir 0.