Keflvíkingar hljóta styrk úr sérstökum flóttamanna- og hælisleitendasjóði UEFA
Keflvíkingar hafa hlotið styrk úr sérstökum flóttamanna- og hælisleitendasjóði UEFA, evrópska knattspyrnusambandinu, að upphæð 25 þúsund evrur. Styrkurinn kemur til vegna knattspyrnutengdra verkefna sem tengjast flóttafólki og hælisleitendum. 29 félagslið um alla Evrópu sóttu um styrkinn.
Keflvíkingar hljóta styrkinn fyrir að hafa boðið börnum hælisleitenda og flóttamanna að æfa tvisvar til þrisvar í viku endurgjaldslaust. Markmið verkefnisins er að styðja við samfélagslega aðlögun flóttamanna og hælisleitenda, enda er mikill fjöldi hælisleitenda og flóttamanna í Keflavík og hefur oft á tíðum reynst erfitt að fá börn af erlendum uppruna til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi.
„Íþróttir, þar með talinn fótbolti, eru kjörinn vettvangur til að tengja fólk með ólíka bakgrunna við hvort annað, íþróttina sjálfa og aðra iðkendur. Afraksturinn er sterkara íþróttastarf, betri líkamleg og andleg líðan þátttakenda og betri aðlögun hælisleitenda og flóttamanna í þeirra nánasta umhverfi,“ segir meðal annars í tilkynningu frá KSÍ.
Keflavík mun halda þessu starfi áfram og efla það enn frekar eftir staðfestingu á styrknum frá UEFA, sem nemur rúmlega 3,5 milljónum króna.
„Líkt og kemur fram í opinberri stefnu KSÍ um samfélagsleg verkefni 2023–2026, þá telur knattspyrnuhreyfingin um 10% íslensku þjóðarinnar. Knattspyrnusamband Íslands lítur því á það sem skyldu sína að nýta þann kraft sem býr í knattspyrnufjölskyldunni til að vera virkur þátttakandi í samfélagslegum verkefnum sem gera raunverulegt og áþreifanlegt gagn. Verkefni sem þessi skipta svo sannarlega sköpum fyrir samfélagið, og erum við afar stolt af því að geta tekið þátt í verkefnum af þessu tagi,“ eins og fram kemur á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.
„Við hjá Keflavík erum vitaskuld mjög ánægð með að hljóta þennan styrk en hann sýnir okkur að við erum á réttri leið varðandi þetta mikilvæga málefni. Við ákváðum strax að taka vel á móti börnum á flótta og vildum gera það sem við gátum til að þeim myndi líða sem best á æfingum hjá okkur,“ segir Ragnar Aron Ragnarsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur.