Heklan
Heklan

Íþróttir

Jón Ragnar vann og lenti því ekki í „17“-álögunum
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
mánudaginn 27. janúar 2025 kl. 09:22

Jón Ragnar vann og lenti því ekki í „17“-álögunum

Jóni Ragnari Magnússyni tókst það sem mörgum tippurum í tippleik Víkurfrétta í vetur hafði ekki tekist, að komast út úr hinni grimmu „17“-bölvun en nokkrir tipparar unnu einn leik en töpuðu svo og enduðu með 17 í heildina. Jón Ragnar vann markmannskempuna Jón Örvar Arason og fóru leikar 10-9. Það er ekki oft sem tipparar falla úr leik með 9 rétta en það er hlutskipti markmannsins og er honum hér með þakkað fyrir þáttökuna.

Jón Ragnar er kominn upp í þriðja sæti og þarf ekki nema sex rétta í næstu umferð til að hífa sig upp í 2. sætið í heildarleiknum. Það kemur í ljós í dag hver næsti áskorandi verði.