Sundið endurvakið í Vogum
Sunddeild Þróttar í Vogum hóf starfsemi sína að nýju fyrir tveimur árum en það er rík hefð fyrir sundi í félaginu. Víkurfréttir heyrðu í sundþjálfaranum Thelmu Rún Rúnarsdóttur um uppbyggingu deildarinnar.
„Við erum að byggja starfið upp að nýju en sunddeildin var mjög öflug fyrir fimmtán, sextán árum síðan. Einhverra hluta vegna dalaði áhuginn og sundgreinin lagðist af um tíma,“ segir Thelma sem hefur verið í forystu við uppbyggingu deildarinnar en hún keppti sjálf í sundi með Þrótti þegar deildin var einna öflugust.
„Þetta er búið að vera heilmikil vinna við að endurvekja deildina en það er að skila sér, iðkendum fjölgar stöðugt. Núna eru krakkarnir sem æfa hjá okkur í fyrsta til fimmta bekk og við höfum líka tekið við krökkum úr sunddeild Grindavíkur sem búa núna í Vogum. Þá höfum við lagt áherslu á að ná til barna af erlendum uppruna og það hefur gengið vel,“ segir hún en krakkarnir hafa verið að taka þátt í mótum að undanförnu og gengið nokkuð vel.
„Við tókum þátt í Speedomótinu hjá ÍRB í fyrra auk þess sem við héldum tvö innanfélagsmót, bæði jóla- og páskamót ,“ sagði Thelma að lokum en upplýsingar um starf sunddeildarinnar er að finna á vefsíðu Þróttar Vogum, throtturvogum.is/sund.