Skólamatur 20 ára - myndir úr afmælisfagnaði
Skólamatur fagnaði nýlega 20 ára afmæli sínu og bauð af því tilefni starfsmönnum og vinum og vandamönnum til fagnaðar af því tilefni í Stapa. Í fögnuðinum var saga Axels Jónssonar og Skólamatar rifjuð upp á skemmtilegan hátt í innslagi sem sýnt var á stórum skjá. Tríóið GÓSS söng nokkur lög og hluti Léttsveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék á meðan gestir gæddu sér á veitingum sem Magnús Þórisson og hans fólk á Réttinum reiddi fram.
Hilmar Bragi var á staðnum og myndaði fjörið eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni.