Flugger
Flugger

Mannlíf

Sprungur alltaf verið til staðar í Grindavík
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
laugardaginn 29. júní 2024 kl. 07:19

Sprungur alltaf verið til staðar í Grindavík

„Eflaust eru margir sem ekki hafa komið til Grindavíkur sem halda að þessar sprungur hafi myndast 10. nóvember en því fer víðsfjarri,“ segir Jón Emil Halldórsson en hann var í byggingarnefnd Grindavíkur í kringum 1985 og þekkir vel til hvernig skipulagsmál hafa verið í bænum frá þeim tíma þar til jarðhræringarnar í Grindavík hófust. Stamphólsgjáin hefur verið til frá því að elstu menn muna og var passað upp á að byggja ekki á henni. Við hamfarirnar 10. nóvember gliðnaði þessi sprunga og aðrar mynduðust út frá henni en líklegt er að ný sprunga hafi myndast við jarðhræringarnar í janúar.

Jón Emil var nýlega búinn að byggja sér draumahúsið sitt í Hópshverfinu en það hverfi fór hvað verst út úr hamförunum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Þegar ég kom inn í byggingarnefnd Grindavíkur var engin byggð þar sem við þekkjum Hópshverfið núna en mér finnst mikilvægt að skýrt komi fram að aldrei var byggt á þeim sprungum sem voru þekktar. Við höfum alltaf vitað af Stamphólsgjánni og þegar atburðurinn varð 10. nóvember þá gliðnaði sú gjá og nýjar sprungur mynduðust út frá henni, t.d. sú sem fór undir Salthúsið. Svoleiðis lagað er ekki hægt að sjá fyrir. Sprungan sem myndaðist í janúar sem nær nánast frá höfninni norðaustur í gegnum bæinn og í gegnum Hópið, er hins vegar ný sprunga tel ég, alla vega hef ég aldrei heyrt af henni.

Björgunarsveitarmenn ofan í sprungu í Grindavík í janúar á þessu ári. Mynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Ég var búinn að byggja mér draumahúsið í Hópshverfinu og það er fullkomlega í lagi en þessi nýja sprunga sem myndaðist í janúar fór rétt fram hjá mínu húsi. Hún fór í gegnum hús í næsta botnlanga og mig grunar að þetta sé sama sprunga og myndaðist þegar gaus innan við varnargarðana í janúar. Ég tel að sprungumyndunum sé lokið og ég myndi treysta mér til að sofa í húsinu mínu en hins vegar myndi mér ekki líða vel að vera með barnabörnin hjá mér. Þeim fannst gaman að fara í berjamó úti í hrauninu en ég sé á göngustíg rétt hjá húsinu mínu að þar er komin sprunga sem virkar ansi djúp svo ég yrði ekki rólegur vitandi af börnum að leika sér þarna. Ég og konan mín erum því flutt til Keflavíkur, erum með útsýni til Þorbjarnar en munum flytja til baka um leið og svæðið er orðið öruggt, vonandi sem fyrst,“ sagði Jón Emil að lokum.