Konvin til leigu
Konvin til leigu

Mannlíf

Stórkonsert Þéttsveitarinnar
Mánudagur 24. mars 2025 kl. 10:35

Stórkonsert Þéttsveitarinnar

Þéttsveitin, ein af hljómsveitum Rytmískrar deildar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, heldur Stórkonsert í Bergi í Hljómahöll, þriðjudaginn 25. mars kl. 20:00 ásamt valinkunnum söngnemendum deildarinnar.

Yfirskrift tónleikanna er "Manstu ekki eftir mér?" og stendur efnisskráin saman af vel þekktum dægurlaga- og rokkperlum frá áttunda, níunda og tíunda áratugnum.

Það verða sagðar sögur og sungið og spilað af krafti.  Sem sé kvöldstund af stuði sem verður "Bítlabænum" til sóma.

Enginn aðgangseyrir og hvatt er eindregið til þéttrar mætingar.

VF Krossmói
VF Krossmói