Heklan
Heklan

Aðsent

Sérstakur píanódagur og tónleikar í Bergi
Fimmtudagur 30. janúar 2025 kl. 11:40

Sérstakur píanódagur og tónleikar í Bergi

Næstkomandi laugardag þann 1. febrúar halda Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og Tónlistarskólinn í Garði einskonar píanódag. Dagskráin fer fram í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og stendur yfir frá kl.11 til 14:15.

Þennan dag fá skólarnir í heimsókn átta píanókennaranemendur frá Tónlistarháskóla Noregs ásamt prófessor við kennaradeild háskólans og munu kennaranemarnir undir handleiðslu hans vinna með nokkrum píanónemendum tónlistarskólanna tveggja. Píanókennarar þeirra munu fylgjast með kennslunni og aðstoða eftir þörfum.

Kennaranemarnir hafa fengið norskan styrk fyrir þetta verkefni, sem verður metið af háskólanum í námi þeirra til kennsluréttinda.

Dagskráin verður tvíþætt. Í fyrri hlutanum sem hefst kl. 11 fer fram kennsla í nokkrum kennslustofum Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Síðari hlutinn er svo píanótónleikar sem verða í Bergi, Hljómahöll og hefjast kl.13:15.

Á tónleikunum munu allir kennaranemarnir koma fram ásamt píanónemanda frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir.

Það er gaman að geta þess að sá aðili sem leiðir þetta verkefni f.h. Tónlistarháskóla Noregs er Ólína Ákadóttir. Hún er ættuð úr Reykjanesbæ og Garði og er einn af kennaranemendunum.