Fréttir

Grindavíkurbæ boðinn togari
Sunnudagur 19. janúar 2025 kl. 06:23

Grindavíkurbæ boðinn togari

Útgerðarfélagið Ganti ehf. hefur gert kaupsamning um fiskiskipið Sturlu GK 12 ásamt veiðarfærum og aflahlutdeildum í fisktegundum sem gáfu samtals 25,2 tonna þorskígilda aflamark. Grindavíkurbæ er boðinn forkaupsréttur samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti.