Dagur Garðbúanna í tippleik Víkurfrétta
Önnur umferðin í úrslitakeppni tippleiks Víkurfrétta var leikin í dag og var um dag Garðbúanna að ræða, Björn Vilhelms og Guðjón Guðmunds fengu 10 rétta en Brynjar Hólm náði 9 réttum. Ekki náðist í Joey Drummer og því fær hann 0 rétta í dag og þarf að kraftaverki að halda að vinna leikinn.
Þetta er staðan eftir tvær umferðir:
Guðjón Guðmunds: 8 - 10 = 18
Björn Vilhelms: 7 - 10 = 17
Brynjar Hólm: 6 - 9 = 15
Joey Drummer: 7 - 0 = 7