HS Orka
HS Orka

Íþróttir

Karen tók fyrsta höggið á Íslandsmótinu í golfi
Fimmtudagur 18. júlí 2024 kl. 10:34

Karen tók fyrsta höggið á Íslandsmótinu í golfi

Karen Sævarsdóttir, áttfaldur Íslandsmeistari í golfi, tók fyrsta höggið á Íslandsmótinu í golfi sem hófst á Hólmsvelli í morgun, á hennar gamla heimavelli en hún tók fyrst í golfkylfu í Leirunni þegar
hún var fimm ára. Um 150 keppendur eru skráðir til leiks á þessu stærsta móti ársins í íslensku golfi.

Karen sló gott högg með stærstu kylfunni í pokanum og boltinn endaði á miðri fyrstu brautinni. Holuröðun á Hólmsvelli var breytt fyrir þetta mót og er fyrsta holan núna sem áður var sú níunda. Fyrstu fimm brautirnar, 1-5 á Hólmsvelli eru nú 10. til 14. Síðustu fjórar holurnar, 15-19, halda sér. Kylfingar hafa tekið þessum breytingum vel en hugmyndin var sú að færa erfiða byrjun vallarins í seinni níu hluta hringsins.

Guðfinna Sigurþórsdóttir, móðir Karenar var viðstödd opnun Íslandsmótsins og fylgdist með dótturinni slá heiðurshöggið, fyrsta högg mótsins. Guðfinna var fyrsti Íslandsmeistari kvenna í golfi en hún vann þrisvar, fyrst árið 1967. Nú verður í fyrsta sinn keppt um Guðfinnubikarinn en hann fær áhugakylfingur í kvennaflokki á besta skorinu. Bikarinn sem verður afhentur er fyrsti eignarbikarinn sem Guðfinna fékk eftir sigurinn 1967.

Optical Studio
Optical Studio

Hér má sjá skor keppenda á fyrsta degi.

Íslandsmeistaramæðgurnar, Guðfinna Sigurþórsdóttir og Karen Sævarsdóttir. Þær eiga saman ellefu titla.

Örn Ævar Hjartarson, Íslandsmeistari 2001 var kylfusveinn hjá Karen þegar hann var strákur í Leirunni. Hér eru þau saman á fyrsta teig í morgun.

Páll Sævar Guðjónsson „röddin“ er kynnir mótsins. Hér sést hann með Íslandsmeistaranum Loga Sigurðssyni, Dagbjarti Sigurbrandssyni og Hlyni Bergssyni.