Mannlíf

Gunnar Ingi Guðmundsson gefur út My kind of Epic
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 6. september 2024 kl. 10:08

Gunnar Ingi Guðmundsson gefur út My kind of Epic

Keflvíski tónlistarmaðurinn Gunnar Ingi Guðmundsson er virkur í tónlistarsköpun sinni en í dag, föstudaginn 6. september, kom út hans önnur plata, My kind of Epic. Hann gaf út plötuna Eyðibýli í fyrra og fetar nýjar slóðir á þessari nýju plötu.

Frá íslenskum eyðibýlum yfir í eitthvað allt annað og meira epíst.

„Á þessari nýju plötu er ég svona nokkurn veginn að lýsa minni eigin hugmynd um hvernig epísk tónlist eigi að vera og hljóma. Ég hef alltaf haft gaman af epískum tónverkum í gegnum tíðina, hljóðverk með stórum hljóðheimi og mikið af hljómum og hafa tónskáld á borð við Hans Zimmer, John Williams, Allan Silverstri, James Horrner og fleiri verið í uppáhaldi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ég reyni að taka hlustandann í einhverskonar ferðalag í gegnum ákveðið þema með tónlistinni á plötunni líkt og ég gerði á fyrstu plötunni minni, Eyðibýli, sem kom út í fyrra.

Tónverkin eru ólík hvert öðru og má finna allt frá dramatík, sorg, dimmleika, og alveg upp í ævintýraleg tónverk.“

Upptökuferlið var mjög skemmtilegt.

„Ég byrjaði að vinna svokallaðar demo upptökur í nóvember í fyrra út í Póllandi þar sem ég var í Sync Camp writing vinnubúðum á vegum STEF ásamt átján öðrum höfundum og tónskáldum frá ýmsum löndum. Fyrsta opnunarverk plötunnar heitir Journey to the magical world og er afrakstur úr þeim vinnubúðum. Hin tónverkin samdi ég og vann hér heima og komu flestar hugmyndirnar við ýmis fikt við píanóið þar sem ég settist niður og byrjaði bara að spila eitthvað út í loftið og beið eftir að geta gripið eitthvað stef eða einhverja laglínu til að vinna með og þróa nýtt tónverk úr því og úr því var þessi nýja plata. Það var svo félagi minn, Stefán Örn Gunnlaugsson í Stúdíó Bambus, sem sá um upptökur og hljóðblöndun og Sigurdór Guðmundsson í Skonrokk studio sem sá um masteringu.

Ég vill þakka þeim Ásu Guðjónsdóttir, fiðluleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur, sellóleikara og Stefáni Erni Gunnlaugssyni, píanóleikara og upptökumanni, fyrir allan þeirra hljóðfæraleik og framlag á plötunni. Sömuleiðis vil ég þakka félagi íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) fyrir styrkveitinguna fyrir gerð plötunnar.

Næsta verkefni sem ég hyggst ráðast í er lítil plata með nýjum íslenskum popplögum í retro/80´s stíl. Mér finnst mjög gaman að vaða úr einu í annað og prófa nýja og gamla hluti,“ sagði Gunnar Ingi að lokum.