Kraftur
Kraftur

Mannlíf

Nashville nights í Hljómahöll
Þriðjudagur 25. febrúar 2025 kl. 10:33

Nashville nights í Hljómahöll

Tónleikaröðin „Nashville nights“ mun mæta í Hljómahöll á laugardagskvöld en þetta er í annað skiptið sem tónleikaröðin mætir til Íslands. Í fyrra var húsfyllir bæði á Selfossi og Hvolsvelli og má búast við miklu fjöri í Hljómahöllinni á laugardagskvöld.
Um viðburðinn: 
Hljómahöll kynnir: Nashville Nights á Íslandi!
Einstök tónlistarupplifun, þar sem fram koma þrír söngvarar og lagahöfundar frá Nashville ásamt íslensku tónlistarkonunum Önnu og Fríðu Hansen, í svokölluðum „Writers Rounds“.
Nashville eða „Music city“, eins og borgin er kölluð, er einna þekktust fyrir að vera höfuðborg kántrítónlistarinnar. Meirihluti íbúanna þar eru lagahöfundar og söngvarar, sem margir hverjir semja smelli fyrir og með stórstjörnum, og semja lögin sem fara á flug um netheima og á samfélagsmiðlum.

Á hverjum degi flykkist fólk hvaðanæva að úr heiminum til Nashville til að upplifa ekta „Writers rounds“ á stöðum á borð við The Bluebird Cafe, 3rd & Lindsley, The Listening Room og The Local, og nú er röðin komin að Hljómahöll.
„Writers rounds“ eru tónleikar, þar sem listamennirnir skiptast á að spila lögin sín, ásamt því að veita áhorfendum innsýn í það hvernig lögin urðu til og ferlið sem þarf til að þau nái eyrum fólks um allan heim. Þetta er fléttað inn í frábæran flutning atvinnusöngvara og lagahöfunda í einstakri tónlistarveislu, í ekta Nashville stíl.
Ekki láta þennan einstaka viðburð framhjá þér fara!