Viðskipti

Fræðslumál starfsmanna í forgang hjá Samkaupum
Mánudagur 10. febrúar 2025 kl. 06:21

Fræðslumál starfsmanna í forgang hjá Samkaupum

Samkaup hefur ráðið Drífu Lind Harðardóttur í stöðu fræðslustjóra í mannauðsteymi fyrirtækisins á verslana- og mannauðssviði. Drífa mun stýra og þróa fræðslu- og þjálfunarmálum fyrirtækisins, ásamt því að veita starfsfólki stuðning í daglegum störfum. Drífa hefur nú þegar hafið störf.

Drífa hefur víðtæka reynslu af þróunarstörfum í mannauðsmálum, sem snúa bæði að almennri starfsþróun og verkefnastjórnun. Drífa er grunnskólakennari að mennt úr Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Starfaði hún seinast sem verkefnastjóri í Sjálandsskóla í Garðabæ, mannauðsstjóri hjá Klettabæ og aðstoðarskólastjóri í Grunnskólanum í Stykkishólmi.

Staða fræðslustjóra er ný staða innan Samkaupa, en fyrirtækið hefur sett sér metnaðarfulla stefnu í fræðslu- og þjálfunarmálum sem unnið hefur verið að síðustu ár. „Fræðsla og þjálfun starfsfólks eru lykilatriði fyrir vaxandi fyrirtæki. Með markvissri nálgun stuðlum við að auknum gæðum í þjónustu, auðveldum innleiðingu nýjunga og gerum vinnustaðinn okkar betri, bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs, um nýja stöðu.

„Við erum ánægð að fá metnaðarfulla manneskju eins og Drífu Lind inn í teymið, og hlökkum til að leyfa henni að móta betur framtíð fræðslumála innan fyrirtækisins. Við vonum að reynsla hennar og ástríða fyrir mannauðsmálum muni lyfta öllu starfi á sviði starfsþróunar,“ bætir Gunnur Líf við.

Helstu markmiðin eru að fræðsla og þjálfun verði viðurkennd leið til að ná árangri á öllum sviðum fyrirtækisins. „Heilt yfir á fræðsla og þjálfun að vera til hagsbóta fyrir allt starfsfólk, stjórnendur og viðskiptavini Samkaupa. Ég hlakka til að innleiða mína þekkingu, bæði í kennslu og mannauðsmálum í þessari stöðu, og er spennt að takast á við nýjar áskoranir á dagvörumarkaði, enda nokkuð ólíkur vinnustaður frá kennslustofunni,“ segir Drífa Lind.


Um Samkaup

Samkaup reka rúmlega 60 smávöruverslanir víðs vegar um landið. Viðskiptavinir Samkaupa geta valið á milli helstu verslanakeðja félagsins. Þær eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland. Staða Samkaupa er áberandi og sterk, bæði utan og innan höfuðborgarsvæðisins. Félagið býður upp á myndarlegar verslanir, fjölbreytt vöruúrval og sanngjarnt verð.