HS Orka
HS Orka

Viðskipti

Kynnir stækkun gagnavers í Reykjanesbæ
Sunnudagur 24. nóvember 2024 kl. 06:11

Kynnir stækkun gagnavers í Reykjanesbæ

Hafin er stækkun tveggja gagnavera atNorth á Íslandi, ICE02 í Reykjanesbæ og ICE03, á Akureyri. Stækkunin kemur til vegna aukinnar eftirspurnar eftir þjónustu gagnavera atNorth frá bæði alþjóðlegum og innlendum viðskiptavinum.

Heildarfjárfesting atNorth vegna stækkunarinnar nemur 41,2 milljörðum króna, en við bætist fjárfesting viðskiptavina fyrirtækisins í tölvubúnaði sem nemur nálægt 300 milljörðum króna. Um er að ræða umfangsmestu stækkun sem íslenskt gagnaver hefur ráðist og innifelur umtalsvart magn af hátæknibúnaði. Leigja þurfti sérhæft flutningaskip til að flytja hluta búnaðarins og kallaður var til stærsti krani landsins til að hífa búnaðinn inn á lóð gagnaversins.

Hönnun gagnavera atNorth miðar að þörfum fyrirtækja sem vinna með mikið magn gagna og þurfa aðgang að búnaði sem ræður við þunga tölvuvinnslu og útreikninga, og nýtur þeirra kosta sem staðsetningin býður upp á, með aðgangi að hreinni orku og sjálfbærri nálgun atNorth.

Auk gagnaveranna í Reykjanesbæ og á Akureyri rekur atNorth gagnaverið ICE01 í Hafnarfirði, en hjá fyrirtækinu starfa yfir 160 manns, fyrir utan verktaka. Fyrirtækið leggur sig fram við að nýta þjónustu verktaka og annarra á svæði hvers gagnavers fyrir sig, jafnt hér heima sem erlendis, segir í tilkynningu frá atNorth.