Leikfélag Glanni
Leikfélag Glanni

Íþróttir

Góð frammistaða Keflvíkinga á bikarmóti í fimleikum
Föstudagur 28. mars 2025 kl. 06:20

Góð frammistaða Keflvíkinga á bikarmóti í fimleikum

Keflvíkingar stóðu sig vel í sannkallaðri bikarmótsveislu í fimleikum í Egilshöll um helgina en keppt var bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum frá föstudegi til sunnudags.

Keflavík sendi tvö lið frá sér í hópfimleikum, 2. flokk og 3. flokk. Stúlkurnar í 2. flokk stóðu sig vel og lentu til að mynda í 4. sæti á dýnu. 3. flokks liðið sem keypti í B-deild gerði sér lítið fyrir og sigraði en einnig voru þær í 1. sæti á gólfi, 3. sæti á dýnu og í 4. sæti á trampólíni.

Keflavík átti einnig keppendur í áhaldafimleikum og fóru þrjár Keflavíkurstúlkur á mótið.

VF Krossmói
VF Krossmói

Guðlaug Emma Erlingsdóttir keppti með sameiginlegu liði Keflavíkur, Stjörnunnar og Bjarkanna og lenti liðið í 2. sæti í 1. þrepi. Guðlaug var einnig 4. hæst á gólfi.

Snædís Líf Einarsdóttir og Harpa Guðrún Birgisdóttir kepptu með sameiginlegu liði Keflavíkur og Fjölnis í 3. þrepi, B-deild, og vann liðið til gullverðlauna á mótinu. Jafnframt var Snædís Líf stigahæst í fjölþraut í þeim hluta ásamt því að ná þrepinu. Snædís var einnig stigahæst á tvíslá. Harpa Guðrún var 5. hæst í fjölþraut, stigahæst á gólfi, önnur á slá og þriðja á gólfi.